| Rosalega flott ný skíði |
| 12. Febrúar 2007, Mánudagur |
| Ég er núna orðinn stoltur eigandi glæsilegra Rossignol skíða og jafnvel enn glæsilegri Salomon skíðaskóa. Hann Daði minn tók sig til og gaf mér skíðagræjur í afmælisgjöf (á afmæli eftir uþb mánuð) og eins og hann er vanur þá keypti hann auðvitað bara það besta handa ofdekruðu eiginkonunni sinni. Ég fékk dótið í hendurnar núna áðan og get varla beðið eftir því að fara í brekkurnar á morgun og prufa það. Hittingurinn um daginn með alþjóðlegu konunum var alveg hreint hinn ágætasti þó svo ekki hafi ég bragðað einn einasta kokteil. Oneinei, um helgar er nú víst nógu mikið af ökumönnum hérna úti undir áhrifum án þess að ég fari að bætast í hópinn. Það virðist nefnilega vera alveg eðlilegt að mæta á barinn á bílnum sínum, fá sér í glas og keyra svo bara heim þegar geimið er búið!! Hérna eru allir að búa sig undir einhvern rosalegan veðurofsa á miðvikudaginn og það er meira að segja strax búið að aflýsa velentínusarboði sem átti að vera hérna í Hampshire Green. Fólk eru alveg eins að búast við þvi að það verði enginn skóli og að fólk komist ekki til vinnu og ég veit ekki hvað og hvað. Ég hlakka nú eiginlega bara til því veðrið er búið að vera frekar tíðindalítið núna að undanförnu. Hvað þarf eiginlega til til þess að skólunum hérna sé aflýst?? Það verður gaman að sjá. Já og valentínusardagurinn ekki á morgun heldur hinn,,,,, spurning hvort maður geri nú ekki e-ð rómó fyrir kallinn,,, eldi kannski einhvern spes mat og svona Hrikalega flottu nýju skíðin mín |
| Skrifað klukkan: 22:42 |